Auglýsing

Endalok alheimsins/danmerkur

15. ágúst 2008 klukkan 20:51
Við sitjum hér þrjár og sötrum bjór
og veltum fyrir okkur hvert þetta sumar fór
endalaust vitlausar og fullar
en erum líka til staðar þegar gamla fólkið drullar
allt sumarið við skeinum og böðum
og heitu stráknunum að okkur löðum
kæróar og sleikar
endlausir leikar

krasnapolsky okkar annað heimili er
þar sem við erum alltaf liggur við með brjóstin ber
nágrannarnir fá ekkert klám lengur
því nú erum við að fara heim drengur
Á SUNNUDAGINN



Við elskum voice við eigum eftir að sakna þín...
danmörk... við erum ekkert án þín





Mella

12. júlí 2008 klukkan 06:11
Í kvöld var djamm . Gugga, Helga og Elma eru að gista hjá okkur og við kíktum á krasnapolsky. Mjög gaman. Þrátt fyrir að Maríu veski týndist/stolið. Didda vorkenndi henni mjög og skildi ekki hvernig hú ngat týnt veskinu sínu svo hún keypti handa henni pulsu. Eftir pulsu kaupinvar Diddu veski týnt/stolið. Bæði veskin innihéldu mikla peninga mikla, debet og visakort og ökuskírteini. Þeim sem er annt um okkur og vilja endilega ekki að við drepumst eru beðnir um að leggja inná okkur pening.
-þegar ég les þetta aftur, þá er ekkert hægt að leggja inná okkur. Við eigum ekki kort.

Ég ætlaði að borga alla þessa ferð sjálf en pabbi hefur núþegar borgað 230 þúsund, ég sjálf 40þúsund og visakortið 35þúsund en þetta er einungis fyrir leigu, mat og djamm.

Á þriðjudaginn síðast var kátt á hjalla ligesom altid. Kíktum á mexi bar og fengum mega kokteila. Didda ákvað að fara fyrr heim og tólk strætó. Hún ratar ekki betur en það að hún endaði uppí sveit og strætó hættur að ganga. Hún ákvað að labba heim, þrátt fyrir rigningu og rok og hafa ekki hugmynd um hvar hú
n var.Þar til hún sá skilti sem stóð..Kaupmannahöfn í þessa átt. Þá fór hún að leita að taxa en labbaði fyrst á tánum á hraðbrautinni í klukkutíma og borgaði svo 7000kir íslenskar í taxa heim. Það var meganice.

Langaði bara að segja að ég kem ekki heil til baka. Ég er orðin svo þroskuð og með svo stóra bjórbumbu. Ég vinn við heimahjúkrun þar sem ég hjóla umsem ég hef ekki gert í 5 ár og nota meira segja hjólaumferðareglur. Já og ég hjóla á milli húsa með kort og rata já rata.  Baða gamalt fólk og skeina. Tala dönsku, skúra og elda. Ég kann að gera kaffi og sjóða karteflur, pasta og elda allan mat. Ég drekk kaffi og það á hverjum degi. En það að kalla gamla fólkið mellu, hefur hjálpað mér í gegnum þetta. En þetta er án efa það efiðasta sem ég hef gert á ævi minni og mun gera. Ég þekki mig ekki lengur sjálf... hvað þá þið.




-Kærlig hilsen Díde og flottu píurnar


SLEIKUR

Þjófar

04. júlí 2008 klukkan 16:36
Við erum búnar að stela þremur hjólum, klósetthreinsi, klósettpappír, handsápu, appelsínu, veski(ath tómu), fullt af bjór,heitum gaurum, uppþvottalögur, banana, kveikjara, sígrettum, hard rock spjótum, karlmannsjakka(stálum sama jakkanum 2svar sinnum) og svo framvegis....
Eyþór og Fannar stela rúmunum okkar og virðingu...
Didda hrinnti Maríu í gosbrunn á Kongens Nytorv á einu djamminu og síminn hennar er því dauður og hún keypt sér nýjan sem didda ætlar að borga,sweetog já þetta var það "fyndnasta sem ég hef séð á æææævvi minni", setning vikunnar, setning síðustu viku var "uppáhalds vinur minn" og setning næstu viku er " hvad síger du" og setning þarnæstu viku er " kjútlingasjúkdómur"
Niggashit eru alls staðar
Fórum í tívolíið í gær þar sem Eyþór fór á kostum, hann er svo sleipur í dönskunni, OG konan spurði Eyþór um skilríki þegar hann ætlaði að kaupa sér bjór því hún hélt hann væri 15 ára strákurinn haha
Búnar að taka snilldardjamm með dönunum, kjúklingasjúkdómur og herpes, segjum ekki meir, píka.
Jónureykingar og gestagangur
Setjum bráðum inn myndir, þegar netið verður komið, erum núna fastagestir á Landromat til að komast á netið
Didda og María sofnuðu eftir fyllerí í strætóskýli eins og bestu rónar
Vinnan okkar, jesús
peningar, jesús
sárar fætur , jesús
Ingimar, jesús
Jesús var í tívolíinu og Eyþór ætlaði að fá mynd af sér með honum
Jesús fór í fallturninn, örugglega að fara upp til himna
Fullar um helgina JÁ, þó við séum að vinna, ætlum að djamma þangað til við förum í vinnuna
við erum svo haaaaarðaaar gellur
Fyrstu gestirnir okkar eru ánægðir með svefnplássið, og já við stálum líka dýnu á götunni fyrir þá
Bestu vinir okkar er strákarnir sem vinna í Kiosken, þeir voru að bjóða okkur í fest til sín, getum ekki beðið
Það er super veður núna, 25 stiga hiti og Parken
Þangað til næst elskurnar
myndir bráðum

Ertu grænlendingur?

22. júní 2008 klukkan 17:47
Einu sinni ákváðu þrír vitleysingar að fara út á lífið. Þeir stefndu á krasnapolsky, en þaðan komast fáir lifandi út. Einn rauðhærður vitleysingur að nafni Dide var svo hrikalega spennt að þegar hún fékk sér vodkaglas í sína hönd þá var ekki aftur snúið, hún byrjaði að þamba...og þamba...og þamba...og þamba

og útkoman var þessi...

æjæj

Danni G er svalur.

21. júní 2008 klukkan 08:02
Danni G. labbaði á glerhurð.

Núðlukrakkar og gleðilega þjóðhátið

17. júní 2008 klukkan 17:45
Sælari
Nú kemur blogg
Það var annað skrall at our place á laugardaginn, þá komu Strákarnir í heimsókn og kátt á hjalla, eðlilega
ATH Strákarnir=> slef.is/denmark mjög skemmtileg og litrík síða sem allir ættu að tékka, tékkiði bara
Við vorum vægast sagt þunnar þarna á laugardeginum (kranskyPolsky á sök á því) og Sóley var því miður ekki jafn full og kvöldið áður...too bad...Sóley: " Hvað myndi fólk gera ef MCDonalds væri ekki til?"
En þetta var gott kvöld, María var á skandalafylleríi, braut rauða hórulampann góða, hljóp svo útí Kiosken kl 2 um nótt að kaupa sér sígrettur á inniskóm en gleymdi veskinu, en til allrar hamingju var sjoppan lokuð, auðvitað.
Línan hennar Diddu:" hah getur maður gubbað ef maður stingur puttanum ofan í kók?"
Svoooo löbbuðum við yfir til strákanna, komumst að því að þeir eiga tvo hórulampa! Plönuðum að stela einum af þeim en við hefum ekki getað haft það á samviskunni
Næsta helgi grill hjá Strákunum, spurning hvort þeir munu eftir að hafa boðið okkur, vandræðalegt en Ellín Helga og Halla beibí Sveins mæta galvaskar á svæðið og fögnum við komu þeirra  
VINNAN, eitt orð, almáttugur ...hvar á ég að byrja, María og Sóley eru á elliheimilinu sjálfu sem er lítið og krúttlegt en furðulegt, ólíkt elliheimilinu Grund mega beboerne eða íbúarnir á elliheimilinu reykja eins og strompar og drekka eins og verstu byttur, enda eru allavega þrír alkahólistar
Didda aka Smokkabjörg er hins vegar í hjemmeplejen eða heimahjúkrun svo hún hjólar á milli og baðar fólk hægri vinstri
Þetta er pínu ponku mikið sjokk, sérstaklega þar sem Didda og Sóley hafa aldrei unnið við neitt þessu líkt, við vonum það besta samt sem áður og minnum okkur ósjaldan á háu launin, 286.000 er þess virði, ójá, þó svo við fáum ekki útborgað fyrr en 31. júlí, góðan daginn góðir hálsar, nú er það bara Kreditcard baby...við erum þó búnar að kynnast tveimur íslendingum sem voru að byrja í sömu vinnu, það eru þau Silvía og Snorri kærópar og fyrrverandi verzlingar og Silvía er líka þekkt sem fyrrverandi formaður Viljans og er hún líkt og Didda rauðhærð með meiru, gaman fyrir Diddu
Heimsóknardagsrkrá:
20.júní :Elín Helga kæra kemur með ekta íslenskt slúður til okkar
2.júlí : Eyþór Smári og Fannar Már verða hjá okkur til 6.júlí og eins gott að Eýþór muni eftir fótbolta, því við ætlum í Parken
7.júlí
: Helga, Gugga og Elma verða hjá okkur í viku eða til 14 júlí og koma með allt það ferskasta frá Hróarskeldu
23.júlí : koma svo yndislegu og yndisfríðu vinkonur okkar Vala og Kristel og Vala ætlar að elda ofan í okkur en Kristel ætlar að mata okkur, við eigum eftir að grenja þegar þær koma,líka þegar þær fara:( við erum einnig svo heppnar að vera ekki að vinna þá helgi sem þær koma svo þá verður eitt stórt djamm!
2.ágúst : verðum við svo heppnar að fá Matta og Elvar til okkar og þeir ætla að njóta lífsins með oss

Det er nu det kæra fólk så vi ses i morgen
P.S vorum að setja nýjar myndir ef einhver hefur áhuga

Alexandra, Sólveig og Sigmarsdóttir



þegar konur fara á skip sekkur það

14. júní 2008 klukkan 15:04

Í gær komumst við að því hve skemmtilegir danir eru.
Okkur var boðið í mega nice grillveislu hjá danska frændfólkinu hennar Diddu sem hún hefur aldrei áður hitt. Sem var........snilld.
Okkur var boðið í bjór með matnum og voru þeir ófáir. Einnig tókum við staupkeppni með gömlu frændunum. Voru sungin fyrir okkur íslensk lög og troðið í okkur áfengi. Sem var......snilld. Eftir að hafa komist að því að Didda er ekki bara æðislega mikill snillingur heldur öll ættin hennar líka, lá leið okkar með yngra danska frændfólkinu heim til okkar að drekka meira. Sem var......snilld. Sóley keypti sér bjórkyppu í fyrsta skiptið og drakk bjór og drapst í lok kvöldsins svo takmarki Maríu og Diddu fyrir sumarið er náð. Eftir elskulegt trúnó með frænkó um að drepa vinkonur lá leið okkar á Kransipolski. Sem var......snilld. Borgar þig inn svo er allt áfengi frítt. Þannig að við drukkum meira. Sem var.....snilld. Þar tókum við fjölskyldukjúkklingadansinn og sumir fóru í slummara, förum ekkert nánar út í það.
Ákvaðum við svo að fara eitthvað annað þar sem þetta fría áfengi var hættulegt, en þá fór Sóley víst heim þar sem hún drapst. María og Didda og frændfólkið stauluðust áfram og gátu varla staðið í lappirnar enda er María fótbrotin. Fórum á annan góðan stað þar sem var hip hop sem var.....snilld. Já, snilldarkvöld. Það sem setti punktinn yfir vaffið var að á leiðinni heim fann Didda dótafíl (mynd væntanleg) sem er alveg eins og fíllinn á fílabjór. SNILLD.




Samt eiginlega meiri snilld að koma heim blindblindfullar og sjá Sóley.....
Kærlig hilsen
Smokkabjörg

Peningar....

11. júní 2008 klukkan 18:33
Nú skil ég hvernig er að vera fátækur námsmaður, ekki það að ég sé að kvarta, Steinunn á nú bara 300 kr á kortinu sínu (haha)
Ok ef við pælum aðeins í því þá erum við búnar að búa hérna í rúmlega eina og hálfa viku og ég er búin að eyða meiri en 50 þús sem er SLÆMT!
Þið  ættuð að vita hvað Urban outfitters, wood wood, Topshop og fl búðir eru hættulegar, þetta er ekki gott peningalega séð og við eigum það alveg pínu skilið
en við erum samt bara einu sinni búnar að "missa" okkur á Strikinu og allt hitt er matur og áfengi...
Þetta er okkar aðal umhugsunarefni núna...
hmmm...annars erum við búnar að vera halda áfram í að dúllast í köben, það er svo mikið af leyndum góðum stöðum hérna, mjög gaman að rölta og finna og skoða
Hitti Rakel og Steinunni í gær, þær búa í minni íbúð en við (haha) í Solbakken í vesterbro, fórum í norrebro og fengum okkur að borða á Laundromat og röltum svo um eldgamlan kirkjugarð, sungum Hauk Morthens lög og föndruðum blómakransa, það er lífið krakkar mínir...
mmm...það er mikið af strákum hérna og það vill svo til að margir þeirra heita KASPER, sumir eru löggur aðrir hermenn, bara eins og gengur og gerist, förum ekkert nánar útí það
Didda vill endilega segja frá því skemmtilega atviki þegar María var svöl að kaupa sér sígrettur(ATH dauðadrukkin á þessum tímapunkti), bað um caRmel blue...mhm...voða fyndið...kom svo út og kveikti á sígrettunni á vitlausum enda, ennþá betra...
Þetta kvöld var sem sagt gott kvöld, fórum á K tre, sem er staður sem ég upplifi sem hverfis tvö, bara stærri og flottari og betri
Næsta djamm verður á föstudaginn þar sem 2 frænkur hennar Diddu koma og leiða okkur um bestu staðina, einn heitir e-ð Polski Polski sem er víst mega heitur staður(heyrir það nú bara á nafninu)
En þangað til næst
og já ég dey úr hungri hér úti þá vil ég verða brennd og þið megið dreifa öskunni á leiði H.C Andersens
LOVE
fátæklingarnir

Þú heldur þeim og ég stel

07. júní 2008 klukkan 18:53

....Það er einmitt þessi setning sem hefur verið vinsæl í þessari ferð. Þar sem maður býr einn án foreldra til að borga allt hefur það að stela allskyns hlutum komið ósjaldan  upp í hugann á okkur. Engu höfum við þó stolið ennþá, nema jú Didda stal tveimur bjórum af Kasper vini okkar í gær. Planið er samt sem áður að stela hjólum í næstu viku.

En já hér í Köben er lífið dans á rósum, en þó eru engir þyrnar á okkar rósum. Uppáhaldstaðurinn okkar er Parken, en hann er hérna við hliðiná okkur. Þar sem við tjillum heitar á bikininu og sötrum bjór og horfum á fokk heita gaura spila fótbolta allan daginn. Verðum svo óvart fullar í kringum börnin og pissum í runna.

 Í vikunni fórum við einnig á ströndina. Á leiðinni þangað hittum við bestu vinkonu okkar sem ætlar að redda okkur mixed dates, þar sem við getum deitað kínverska, afríska, tælenska, danska og svo framvegis gaura. En hún heitir Ninja, það finnst okkur mjög fyndið. Ég hlakka mjög til að fara á deit með japana.
Á ströndinni var svo tanað og étið bollur sem María bakaði og horft á heita gaura. Steinunn er svo búin að tjilla eilítið með okkur þar sem við vorum töskugeymslan hennar.
Tókum heitt megadjamm, þar sem var svona götupartý allt brjál. Didda og María fundu ástina í lífi sínu í elskulegu litlu kioskinni sinni - Stóran fílabjór! Síðan var svo djammað og djúsað fram á nótt og eignuðumst við mikið af vinum sem eiga eftir að fylgja okkur alla lífsleiðina. Tókum svo eftirpartý  hjá dönskum hermönnum....skulum ekkert fara nánar út í það.
Allavega lífið er að leika við okkur og það er endalaus hiti hér. Hinsvegar erum við ekki alveg eins góðar í dönsku og við héldum áður en við komum hingað. Á morgun förum við svo til Christianiu að reykja hass með pabba Sóleyjar og saumaklúbbnum hans. Verð að þjóta, María er að elda kjúlla ætli ég þurfi ekki að hjálpa til..... eða Sóley sér um að skera grænmetið. Ég sé um að skemmta þeim. Annars er það bara meganice matur og hvítvín og bjór bjóóóóóóóóór, fílabjór for ever.
-Vala ég elska þig.



Kærlig hilsen Dida með einu d…..Gellan sem talar of mikið og borðar alltof hægt.


.................og sóley og maría

 

Heitir gaurar.

02. júní 2008 klukkan 17:34
Heitir gaurar, endalaust heitir gaurar.
Speglar okkur vantar spegla. Okkur vantar geðveikt mikið spegla.
Við keyptum ís í dag úr ísbílnum. María ætlaði að kaupa sér einn. Fengum kassa.
Didda er enn raddlaus. En talar samt mest af okkur. Það finnst Maríu og Sóley pirrandi.
Strönd á morgun, heittheittheitt.
HEITIR GAURAR.

Kveðja danirnir.